|
20.03.2008 16:48:33 / heidamaria
Þá er ég komin með nýtt blogg þar sem ég verð rosalega dugleg að blogga og setja inn myndir!! Lofa! En það blogg á samt líka að vera svolítið tileinkað hundunum, nenni einfaldlega ekki að halda út dýralands síðu og blogg síðu og fannst þetta því bara tilvalið  slóðin er http://castorogmani.bloggar.is
»
08.03.2008 21:50:14 / heidamaria
Það eru komnar myndir af Mána í myndasöfn
»
16.05.2007 22:25:35 / heidamaria
»
06.05.2007 21:10:15 / heidamaria
»
03.05.2007 20:11:52 / heidamaria
Smá uppfærsla svo síðan deyji
ekki 
En ég er að bíða eftir pizzu
einmitt núna, svo hvað annað en að blogga smá.
Ég var í listasöguprófi áðan og
gekk það bara vonum framar ekki slæmt. Annars er lítið að frétta
bíð bara spennt eftir Eurovision!! nei djók... bíð spennt eftir
að fara út og svona Er bara að gera allt klárt áður en ég
fer, fer í klippingu á morgun til að vera pæja úti 
Ekkert meira í bili, pizzan fer
líka alveg að koma 
»
25.04.2007 14:40:47 / heidamaria
Þá er kominn 25. apríl sem
þýðir...
að það eru 23 dagar þangað
til við förum út til Englands 
að það eru 6 dagar þangað til ég
fæ útborgað (sem er alltaf gaman) 
að það eru ekki svo margir dagar
þangað til skólanum lýkur 
Anyways..... er farin að hlakka
mikið til að fara út og vera búin í skólanum. Hlakkar eiginlega
mest til að geta bara slappað af án þess að fá samviskubit yfir því
að maður ætti að vera að gera eitthvað allt annað Er eiginlega
farin að sjá mig og Írisi í anda sitjandi úti með einn öllara og
láta Óla og Halldór grilla og stjana í kringum okkur Ég ætla
að reyna að hugsa sem minnst um flughræðsluna, er eiginlega alveg á
því að þetta sé nú allt bara í hausnum á mér Þannig að næst
þegar ég hugsa að það gætu verið hryðjuverkamenn um borð í vélinni
þá segi ég bara "isss, hann Óli tæklar þá bara"  Held að
minnsta kosti að þetta séu alveg jafn vitlausar
hugsanir.
En jæja þá er komið nóg í bili
---- seeyaa
»
18.04.2007 09:01:09 / heidamaria
Jibbý það er
mánuður þangað til við Óli gerum innrás til
Englands!!!
Kvíður samt smá
fyrir fluginu 
vona bara að þetta
bjargist 
»
05.04.2007 21:01:13 / heidamaria
»
03.03.2007 15:48:26 / heidamaria
Ákvað að breyta aðeins lúkkinu á síðunni, enn einu sinni en
held að ég haldi mig bara við þetta 
»
02.03.2007 18:54:31 / heidamaria
Það er bara
allt að gerast þessa dagana!!! Við fengum Castor á
Miðvikudaginn og hann er bara yndislegastur og flottastur,
enginn vafi þar á ferð NeiNei... þrátt fyrir örfá slys hér
inni!!! Ég er núna bara að reyna að vinna upp í skólanum,
sluggsaði smá (bara pínu pons lofa) síðustu daga, fór alltaf
bara að skoða hunda myndir og eitthvað! Ekki alveg nógu gott,
en núna get ég farið að einbeita mér aftur þegar hann er bara
hliðin á mér. Er byrjuð á fullu að skrifa ritgerð um áhrif
Heilags Fransis frá Assisi á list á 13. öld með sérstakri
skírskotun til Giotto! Jahá!!! Þetta getur
kella!!!
En jæja læt þetta gott í bili er nefnilega bara lasin, finnst eins
og hausinn á mér sé rosalega þungur. (Óli segir að það sé vegna
þess að hann sé svo vitlaus, en við vitum betur þetta er bara allt
vitið!!)
»
01.03.2007 10:31:47 / heidamaria
Nú getið þið farið í myndir og smellt á Castor. Það er nýji
hundurinn okkar.
»
24.01.2007 17:45:01 / heidamaria
Hvað
er áramótaheitið í ár??
Vera
duglegri að læra
0%
Missa
X mörg kíló
38%
Vera
góð/ur við allt og alla
0%
Hætta
baktali
8%
Heimsækja
Írisi og co
31%
Taka
fullt af myndum á nýju ári
8%
Annað
15%
Það er
greinilegt að það er vinsælast að ætla að verða fitt og flott!!!
En næst vinsælast er að heimsækja Íris, þannig að Íris má
búast við fullt af fólki í heimsókn í ár Náttúrulega kemur
líka besta og flottasta fólkið í heimsókn, við Óli erum nefnilega
að fara að skella okkur til hennar í Maí. Við förum meira að segja
daginn fyrir brautskráninguna hans Óla því hann er svo dofinn að
hann bara pældi ekkert í þessu Þannig að Íris verður bara að
halda Prívat útskriftarveislu fyrir hann
Óla 
»
Síður: 1 2
|